Wednesday, May 4, 2011

Stílistinn hjá Kardashian systrum


Monika Rose hefur aðallega stílistað hjá Kim, Kourtney og Khloé Kardashian undan farin ár en tekið að sér fjölmörg önnur verkefni fyrir stjörnur sem fara á rauða dregilinn og víðar og oft hafa þær stjörnur unnið sem „best klæddu stjörnurnar”. Hún er líka með blogg sem hún er dugleg að posta myndum af systrunum þremur, verkefnum sem hún tekur fyrir og bara sem henni dettur í hug.


Hérna er bloggið hennar:
http://monicarosestylist.blogspot.com/
Hún er líka með online shop á netinu:
http://www.revolveclothing.com/




Hellz Bellz SS11






Hellz Bellz er shop online síða. Nýjasta línan hjá þeim er mjög flott og heitir hún Queens Of Noise. Ég hef aldrei áður verið vör við þessa verslun en hafa flíkur frá henni verið mikið í tískublöðunum NYLON og seventeen.
Fötin einkennast af rosalega miklum cut-outum sem gefur flottan stíl á fötin.
























Thursday, April 28, 2011

Lyklakippur

Vertu með flotta lykla! Til er endalaust úrval af flottum lyklakippum. Maður er ekki mikið að kaupa sér flottar lyklakippur heldur á maður það til að nota bara einhverja gamla. En lyklakippa er nú fashion accessories og afhverju ekki að hafa hana flotta og leyfa sér aðeins að splæsa í eina.



















-

Portfolio töskur

Það nýjasta í tískunni í dag eru portfolio töskurnar. Þær geta verið fyrirferðamiklar þar sem ekki er hægt að hengja þær á sig. Það gæti samt verið hentugt að hafa svona minni töskur í stað þess að bera huge tösku með fullt af dóti sem er bara fyrir og þú ert í klukkutíma að leita af lyklunum. Bláa Céline taskan sló heldur betur í gegn hjá tískubloggurum og kostaði hún um 400 dollara. Hægt er að fá líkar töskur í ódýrari búðum.











-